Gugga, Tinna, Helga og Sirrý

*The Girlz*

25.01.2009 20:51:40 / Gugga

Fyrsta Svíþjóðarbloggið

Sælir kæru gestir okkar yndisfögru síðu thegirlz. Langt er liðið en nú á svo sannarlega að rífa síðuna upp af rassgatinu.

Ég er semsagt farin á vit ævintýranna, Svíþjóðar nánar tiltekið. Þar er ég með fáránlega góða vinnu, AÐ SPILA FÓTBOLTA. Love itJ Ég spila með Djurgården sem er staðsett í miðri höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi. Íbúðin mín er á geggjuðum stað, bý alveg við fótboltavöllinn, er 2-3 mín að labba á æfingu. Er síðan alveg við lestarstöðina (20 sek að labba) og síðan er matvörubúð með pósthúsi í sömu byggingu og ég bý í.

http://photos-d.ll.facebook.com/photos-ll-snc1/v2061/44/120/522196852/n522196852_1733659_2695.jpg

Ég og Sindri erum hálfpartinn að gera íbúðina upp en Svíar virðast hafa þvílíkt þema fyrir hálf-gulum veggjum, veggfóðri og ljótum baðherbergjum. Við máluðum allt hvítt uppá nýtt og höfum tekið margar ferðirnar í IKEA til að gera íbúðina heimilislegri! Þetta kemur nú allt á endanum og við söfnum húsgögnum smátt og smátt:)
http://photos-d.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v2061/44/120/522196852/n522196852_1745803_1186.jpg
Fyrsta liðsdjammið var í gær en fyrr um daginn var svona „afþreyjingardagur“ þar sem farið var í allskyns furðulega leiki í einhverjum „ævintýragarði“ eða e-h þvíumlíkt. Svíar alveg að missa sig í útivistargörðunum sínum. Útigrill í skógi,  skíði á vatni ofl..Um kvöldið var förinni heitið í VIP herbergi á e-h skemmtistað. Þar var haldið Billiard mót, fajita hlaðborð framreitt og ýmislegt í fljótandi formi.  Þá má segja að ég hafi ný kynnst skemmtilegu hliðinni á leikmönnum en mér líst þvílíkt vel á þennan hóp fyrir komandi leiktíð
J Liðið samanstendur bara af sænskumælandi fólki þannig ég þarf að gjöra svo vel að læra sænsku sem fyrst! Samt eru alveg útlendingar, t.d frá
Finnlandi, þýskalandi og Belgíu en allir tala samt reiprennandi sænsku!!
http://photos-g.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v2061/44/120/522196852/n522196852_1745822_6575.jpg

Æfingarnar eru helvíti erfiðar og ég hef kynnst nýjum víddum í „interval“hlaupum í svona garði! Það er algjört helvíti. Einn hringur er tæplega 1km (brekkur og fleiri leiðindi á leiðinni). Fyrst hlupum við 6 stykki og áttum að vera undir 4 mín með hringinn og 1,5mín í hvíld á milli. Mér fannst þetta drulluerfitt og viku síðar mætti ég galvösk í sama hlaup, en NEI það var búið að breyta: 7 hringir (semsagt 7 km) og 1 MÍN Í PÁSU. En ég hugsaði, maður getur víst ekki vælt fyrst maður er að fá helvíti vel borgað fyrir þetta, og ég tala nú ekki um formið sem maður kemst íJ

Ég hendi inn fleiri fréttum síðar en læt þetta nægja í bili!! p.s fleiri myndir eru á facebook síðunni minni!!

Hejdå


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 22:40:12 / thegirlz

Tinna á leiðinni heim... sem þýðir..



Að við verðum allar saman



Fáum okkur kokteil



Förum á hestbak



Fáum Guggu-pizzu


Dönsum



Gistum saman


Verslum

Kaffihús, knús, vídjó kvöld, sleepovers, sund, ís, bíltúrar, rauðvíns- og ostakvöld, spilakvöld, ferðalag út á land...

og svo margt, margt fleira.. næstu vikur verða helgaðar vináttunni!

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 21:47:38 / thegirlz

Húún á afmææli íííí daaaag

Sirrý okkar, litla þokkagyðjan á afmæli í dag.. Loksins búin að ná okkur hinum aldursforsetunum.. hehe..





Eigðu góðan dag elsku ástarbossinn okkar,, nei við meinum.. tjékk þiss ááát..!!!!!!!

Lovjú, Helga, Tinna og Gugga


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 21:46:54 / thegirlz

Húún á afmææli íííí daaaag

Sirrý okkar, litla þokkagyðjan á afmæli í dag.. Loksins búin að ná okkur hinum aldursforsetunum.. hehe.. Eigðu góðan dag ástin okkar..


Eigðu góðan dag elsku ástarbossinn okkar,, nei við meinum.. tjékk þiss ááát..!!!!!!!

Lovjú, Helga, Tinna og Gugga


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 14:47:29 / Sirrý

Að lifa fyrir augnablikið


Have you ever watched kids
on a merry go round
or listened to the rain slapping on the ground?
Ever followed a butterfly's erratic flight
or gazed at the sun into the fading night?
Do you run through each day on the fly?
When you ask 'How are you?' do you hear the reply?

When the day is done, do you lie in your bed
with the next hundred chores running through your head?
Ever told your child, 'We'll do it tomorrow.'
And in your haste, not see his sorrow?
Ever lost touch? Let a good friendship die?
Cause you didn't have time to just call and say hi..

When you worry and hurry through your day
it is like an unopened gift....thrown away

Life is not a race. Take it slower.
Hear the music before the song is over.

Það er ekki hægt að minna sig of oft á það hvað lífið er stutt, dýrmætt og brothætt. Á einu andartaki getur allt breyst.. og það sem var svo sjálfsagt, er það ekki lengur


Grípið tækifærin þegar þau gefast, og látið drauma ykkar rætast..




» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 23:48:21 / thegirls

Hún á afmæli íííí dag..

Þessi fallega snót á afmæli í dag :)

Til hamingju með afmælið ástin okkar, þú er algjör sykurpúði.. Love U


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 01:36:54 / Sirrý

I wanna jam it wid you

http://www.traveltsthotelguide.ca/images/jamaica.gif


Ég er farin til Jamaica og New York.... aaahhhhhhhh!

Langþráð frí loksins orðið að veruleika, yndislegt..

http://www.nyc-architecture.com/CP/Central_Park_Reservoir.jpg

Vildi að ég gæti pakkað ykkur öllum ofan í tösku og tekið ykkur með

Njótið tímans sem Tinna verður heima... Gugga ég skála fyrir þér á afmælisdaginn..

Ykkar, always
Sirrý


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 15:01:14 / thegirls

Hún á afmæli íííí dag..

Þessi ást á afmæli í dag :)


Til hamingju með afmælið babycake :)
Love U




» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 23:08:43 / helga

klukkan tikkar

Aðeins nokkrar klukkustundir í þetta:


og þá gerist þetta:

svo þetta:

Og hver veit nema að ég fái mér eitt svona

Vúuuhí


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 22:17:04 / helga

Ég er genginn af göflunum.. ehe

Þetta kallar maður lifandi skúlptúr

Hefði samt viljað ná mynd af mér þar sem ég var “ballerína í spreng”, þ.e. ballerína sem þarf rosalega mikið að pissa, en ekki Allah. En svona er þetta, sviðsljósið er ekki alltaf á réttum tíma á réttum stað. Heeee%(/&(%is..
En aðeins 3 dagar eftir að prófalestri og þá tekur við sumar, sól og gleði. Ef einhver hefur svo áhuga á að sjá þennan mjög svo listræna –gjörningaskúlptúr endurtaka sig þá mun hann eiga sér stað á föstudaginn kl. 19:05 en ég kom einmitt í heiminn 27.mars 1985, kl. 19:05.

*Ókeypis aðgangur*


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 19:56:37 / Gugga

Prófalestur,

Nú er sá tími árs sem ungviði þjóðarinnar, eða bara skólafólkið, læsir sig inni og kafar djúpt ofan í bækur sínar. Prófa-season

- Sirrý er lokuð inni á Bræðraborgastígnum, án veraldarvefsins og með sinn brenglaða síma, hún verður væntanlega orðin jafn veruleikafirrt og fólkið sem kemur heim úr Survivor eftir fjarveruna frá umheiminum.

- Helga tók bókasafn Hafnarfjarðar á þetta þar sem nokkrir velvaldir einstaklingar fá að rotta sig saman í kjallaranum og ræða þar saman um listarsöguna með kaffibolla í hönd.

- Tinna er on the runway in London og er væntanleg á klakann innan skamms!!

- HásinHeiger er með bók í hönd á hinum ýmsu stöðum þar sem það er nokkuð erfitt að koma "big-foot tunglspelkunni" fyrir. 


Annars er komið fáránlega gothttp://lh5.ggpht.com/helgus18/R_y6Z__xxgI/AAAAAAAAAfQ/ih19_3SNKTk/DSC03467.JPG?imgmax=512t veður og manni langar helst í eina svona bollu eins og er á myndinni:)

Annars er það að frétta að mitt lið Valur tapaði í úrslitaleik lengjubikarsins 4-0 á móti KR!! Ekki sátt, var vægast sagt gjörsamlega trítilóð þarna á hliðarlínunni, ekki alveg að sætta mig við að horfa bara á!!

-HásinHeiger out-

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 16:20:16 / helga

Gleðilegt sumar

Gleðilegt Sumar People



Sumarið í fyrra var skemmtilegt, en ég finn það á mér að hið nýja mun ekki vera síðra. Við munum kannski taka okkur pásu í tramplólín æfingum, þar sem Gugga er ekki í trampólínformi, en munum í staðinn þræða allar helstu sundlaugar landsins og fara ógrynni sundferða þar sem létt vatnsleikifimi verður numin undir minni handleiðslu. Ég er meistari í því að sulla í þessum sundlaugarpollum. Ég mun líka að öllum líkindum festa kaup á ferðaheitapott sem verður staðsettur einhverstaðar í garði í Reykjavík og þar munum við sitja með kokteil í annari og kokteil i hinni langt frá á rökkur næturinnar. Heyri í öskur - ok vá rólegar, þurfið ekki að missa ykkur í spennufalli.

Sem stendur sit ég undir bókasafni Hafnarfjarðar.  Ég er búin að vera að grafa lengi kjallaranámu, sem nú loksins er tilbúinn og hér mun ég sitja fram á föstudaginn 2. maí og lesa skemmtilegan fróðleik um listir fyrri alda og málverk samtímans. Í því tilefni ætla ég að blasta einni skemmtilegri mynd sem góðvinur minn og fyrrum bólfélagi Édouard Manet málaði seint á 19. öld og heitir Morgunverður í skóginum.

Hann kann´etta kallinn... Nú tel ég dagana í að ég muni liggja á beði nakin líkt og frúin hér að ofan og telja frjókornin.
Ahh yndislegt líf, þetta líf..
Enn og aftur gleðilegt sumar, verið góð við hvort annað og þá mun sólin leika við ykkur. (hún á kassabíl, nokkrar skóflur og flugdreka) svo krakkar... verið stillt.
Helga




» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 10:36:04 / helga

Skottan mín orðin 2 ára

Diljá Karen, litla skottan mín er 2 ára í dag. Þessi litli engill fær mig til að brosa og hlægja á hverjum degi. Ég veit ekki hvar ég væri án hennar.. Allt er svo yndislegt og frábært í augun hennar, lífið svo skemmtilegt.
Til hamingju með afmælið ástin mín, ég elska þig meira en orð geta tjáð :D

Þú ert yndið mitt

Þú ert yndið mitt yngsta og besta,
þú ert ástarhnossið mitt nýtt,
þú ert sólrún á suðurhæðum,
þú ert sumarblómið mitt frítt,
þú ert ljósið sem lifnaðir síðast,
þú ert löngunnar minnar Hlín.
Þú ert allt sem ég áður þráði,
þú ert ósk, - þú ert óskin mín.

Þórarinn Guðmundsson / Gestur


                                                -Diljá Karen frá 1 árs til 2 ára -







» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 01:12:42 / Gugga

Slitin hásin og leiðindi

Þannig fór nú það.....

Slitin hásin - lítið um það að segja, held að þessi mynd lísi því pínu hversu mikilvæg þessi blessaða sin er:

Ég sleit semsagt hásin í leik á móti KR, hélt það hefði einhver tekið sig til og þrumað aftan í mig, en svo var nú ekki, "bang" og fucxxxx sinin í tvennt og skaust uppí kálfa..frekar óþægilegt verð ég að viðurkenna.

Nú er það bara gips, hækjur og allur pakkinn, ekki alveg það sem maður bjóst við fyrir tímabilið en maður velur sér víst ekki áföll og tímasetningar á þeim..

Ég fór því í klippingu og keypti mér nýjan diesel jakka, enda ekkert betra en gott make-over eftir svona lagað, reddaði deginum..

Það jákvæða er að nú hef ég eeeeeeennnnnnnnddddddaaaaalausan tíma og engar afsakanir fyrir því hversu lítið er orðið bloggað á síðunni okkar! ég ætla hérmeð að taka síðuna í gegn:)

Prófatörnin er framundan, engin Finnlandsferð, þá kemst ég allavega í prófin, var reyndar búin að fá að færa próf, en það þýðir ekki að velta sér uppúr því lengur!
þangað til næst
GG a.k.a hásin hækja.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Englakroppar